Sjómannafélag Eyjafjarðar

Heimasíða Sjómannafélags Eyjafjarðar

Nýjustu fréttir

  • Sjómannadagurinn!

    Sjómannadagurinn er á sunnudaginn. Hátíðardagsskrá dagsins er að finna hér á síðu Akureyrarbæjar. Einnig hér á Facebook er að finna ýmsar upplýsingar, td um skráningu í viðburði og fl. 

  • Orlofshúsið á Illugastöðum


    Orlofshús

    Frá og með mánudeginum 3. maí nk. hefst útleiga á orlofshúsi félagsins á Illugastöðum.

    Húsið er leigt viku í senn og ber að greiða vikuleiguna við pöntun á húsinu.

    Þeir félagsmenn sem ekki hafa fengið sumarhúsið leigt hjá félaginu sl. þrjú ár hafa forgangsrétt til kl. 16.00 þann 7. maí nk.

    Einnig minnum við á íbúðirnar í Reykjavík, en leigan á þeim er með venjubundnum hætti allt árið.

    Sjómannafélag Eyjafjarðar,

    Skipagötu 14, sími 462-5088


  • Aðalfundur 2010


    Aðalfundur félagsins verður haldinn föstudaginn 16. apríl og hefs kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn á fimmtu hæða í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14.

    Dagskrá:

    1. Venjuleg aðalfundastörf

    2. Lagabreytingar

    3. Breytingar á reglugerðum sjúkrasjóðs og orlofssjóðs

    4. Önnur mál

    Félagar, mætum vel og stundvíslega. Léttar veitingar verða í boði.

    Stjórnin. 


  • Áskorun LÍÚ, FFSÍ, SSÍ og VM til stjórnvalda: Eflum þyrluþjónustu Landhelgisgæslunnar


    Landssamband íslenskra útvegsmanna, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og VM - félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa sent frá sér sameiginlega áskorun til stjórnvalda um að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar þannig að hún fái sinnt því eftirlits- og öryggishlutverki sem henni er ætlað samkvæmt lögum. Áskorunin er svohljóðandi: Lesa meira

  • Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski og ýsu um 9-10%


    Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 9%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var hækkað um 10% og verð á karfa um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. febrúar 2010.

  • Námskeið í heimilisbókhaldi

    Neytendasamtökin, Eining-Iðja, Fagfélagið, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu og Sjómannafélag Eyjafjarðar bjóða félagsmönnum sínum upp á námskeið í heimilisbókhaldi.

    Lesa meira

  • Fordæma afnám sjómannaafsláttar

    Fundarmenn hlusta á Árna Guðmundsson, framkvæmdastjóra Gildis lífeyrissjóðs. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson.
    Í gær var haldinn félagsfundur í Sjómannafélagi Eyjafjarðar og lýstu fundarmenn þar yfir megnustu óánægju með þau vinnubrögð stjórnvalda að „ráðast sérstaklega að kjörum sjómanna með því að afnema sjómannaafsláttinn eins og gert var með lögum nú rétt fyrir jólin.“ Sjómannaafslátturinn er hluti af kjörum sjómanna og hefur verið það í rúma hálfa öld. Lesa meira

  • Félagsfundur

    Félagsfundur sjómannafélagsins verður haldinn þriðjudaginn 29. nk. að Skipagötu 14, 5. hæð kl. 15:00 Aðal efni fundarins verður umfjöllun um lífeyrismál. Árni Guðmundsson framkvæmdarstjóri Gildis lífeyrissjóðs og Tryggvi Tryggvason stjóðsstjóri Gildis lífeyrissjóðs mæta á fundinn, halda erindi og svara spurningum fundarmanna. Léttar veitin gar í lok fundar.

    Félagar mætum vel og stundvíslega.

    Stjórnin.


  • Vegleg gjöf til Mæðrastyrksnefndar Akureyrar

    Á myndinni eru Jóna Berta Jónsdóttir og Björg Hansen, fulltrúar Mæðrastyrksnefndar, ásamt fulltrúum fimm félaga af þeim sex sem færðu nefndinni gjöfina. Talið frá vinstri. Heimir Kristinsson, Eggert Jónsson, Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Jóna Berta, Hákon Há
    Sex verkalýðsfélög í Eyjafirði afhentu í dag, föstudaginn 27. nóvember, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar styrk að upphæð kr. 1.800.000. Jóna Berta Jónsdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Mæðrastyrksnefndarinnar. Lesa meira

  • Tímamótadómur


    Þann 4. nóvember sl. vann félagsmaður í Sjómannafélagi Eyjafjarðar mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur sem hann höfðaði gegn Samherja og var fyrirtækið gert að greiða honum kr. 695.434 með dráttarvöxtum. Samherji þurfti einnig að greiða honum kr. 300.000 í málskostnað. Mál þettavar unnið af Lögmenn Jónas & Jónas Þór sf. sem eru lögmenn Sjómannafélagsins.

    Lesa meira

  • Sumarfrí


    Vegna sumarleyfa verður skrifstofa félagsins lokuð til 17. ágúst nk. Pantanir og önnur afgreiðsla á orlofsíbúðum í Núpalind 6, Kópavogi og orlofshúsinu á Illugastöðum fer fram hjá Félagi verslunar- og skrifstofufólks hér í Alþýðuhúsinu á þriðju hæð, sömu hæð og skrifstofa sjómannafélagsins er.

    Símanúmerið hjá Félagi verslunar- og skrifstofufólks er: 462-1635


  • Aðalfundur

    Aðalfundur Sjómannafélags Eyjafjarðar verður haldinn að Skipagötu 14, 5. hæð, veitingastaðnum Parken, fimmtudaginn 28. maí nk. og hefst kl. 20:00.

    Dagskrá:

    1. Skýrsla stjórnar

    2. Reikningar félagsins 

    3. Stjórnarkjöri lýst

    4. Önnur mál

    Félagar, mætum vel og stundvíslega.

    Boðið verður upp á lettar veitingar á meðan fundur stendur og í lok fundar.


  • Orlofshús, íbúðir, útleiga og sumarfrí


    Frá og með mánudeginum 4. maí nk. hefst útleiga á orlofshúsi félagsins á Illugastöðum. Húsið er leigt viku í senn og ber að greiða vikuleiguna við pöntun á húsinu. Þeir félagsmenn sem ekki hafa fengið orlofshúsið leigt hjá félaginu sl. þrjú ár hafa forgangsrétt til kl 16:00 þann 8. maí nk.

    Pantanir í húsið eru gerðar í síma 462-1635 frá 4. maí til 25. maí. Einnig fara fram pantanir, greiðsla og afhending lykla í orlofsíbúðirnar okkar í Kópavogi í sama síma og á sama tíma.

    Pöntunarsíminn: 462-1635 er sími Félags verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrennis og er skrifstofa félagsins á sömu hæð, þe. 3ju hæð í Alþýðuhúsinu, og skrifstofa Sjómannafélags Eyjafjarðar. Þetta fyrirkomulag er vegna sumarleyfis starfsmanns Sjómannafélagsins frá 4. maí til 25. maí.

    Við minnum á að fyrirkomulagið á útleigu orlofsíbúðann okkar í Núpalind 6, í Kópavogi er með sama hætti allt árið. Þá hefur stjórn félagsins ákveðið að orlofsstyrkirnir verða með sam hætti og gilt hefur.  


  • Núpalind 6, Kópavogi.


    Sú breyting hefur orðið á leigufyrirkomulagi í íbúðunum okkar í Núpalind 6, að nú fer leigan alfarið fram frá skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, 600 Akureyri. Sími á skrifstofunni er: 462-5088. Einnig ber að sækja og skila öllum lyklum að orlofsíbúðunum á skrifstofu félagsins. Þá hefur einnig verið gerð sú breyting að nú verða leigjendur að koma með allt sitt lín sjálfir, þ.e.a.s. lín utan um sængurfatnað, handklæði og þurkur til að þurka leirtau. Borðtuskur og gólftuskur verða til staðar í íbúðunum.

    Leigutímabil íbúðanna er frá kl. 18:00 á fimmtudegi til kl. 15:00 næst fimmtudag á eftir. Fari svo að leigjandi nýti sér ekki að ver allt tímabilið er mjög áríðandi að láta skrifstofu félagsins vita um það. Þetta fyrirkomulag gildir frá og með deginum í dag, þe. 07. apríl 2008.


  • Kjarasamningur fyrir smábáta undirritaður.


    Í dag 21. desember 2007 var undirritaður kjarasamningur milli samtaka sjómanna (FFSÍ, SSÍ og VM) annars vegar og Landssambands smábátaeigenda hins vegar. Kjarasamningurinn tekur gildi þann 1. janúar 2008. Fram til þessa hefur ekki verið í gildi kjarasamningur fyrir sjómenn á smábátum. Sjómenn sem Lesa meira

  • Dómur - Héraðsdóms Reykjavíkur


    Í neðangreindri slóð er eð finna dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Jónas Haraldsson hrl. vinnur mál fyrir Júlíus Magnússon félagsmann í Sjómannafélagi Eyjafjarðar nú 4. janúar.

    http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=E200706459&Domur=2&type=1&Serial=1&Words=

  • Vegleg gjöf til Mæðrastyrksnefndar Akureyrar

    Talið frá vinstri. Konráð Alfreðsson, Jóna Berta, Björn Snæbjörnsson, Finnbogi Jónsson, Heimir Kristinsson, Einar Hjartarson og Eggert Jónsson.

    Sex verkalýðsfélög í Eyjafirði afhentu í dag, föstudaginn 14. desember, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar styrk að upphæð kr. 1.100.000. Jóna Berta Jónsdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Mæðrastyrksnefndarinnar.

    Lesa meira

  • Vegleg gjöf til Sjúkrahússins á Akureyri


    Sex stéttarfélög í Eyjafirði afhentu í dag, mánudaginn 5. nóvember, Sjúkrahúsinu á Akureyri styrk að upphæð kr. 1.700.000 upp í kaup á beinþéttnimæli. Halldór Jónsson, forstjóri FSA, veitti styrknum viðtöku fyrir hönd sjúkrahússin. Lesa meira

  • Skrifað undir samkomulag um sameiningu


    Í dag, á ársfundi ASÍ, skrifuðu formenn Sjómannafélags Eyjafjarðar, Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, Einingar-Iðju, Félags byggingamanna Eyjafirði og Félags málmiðnaðarmanna Akureyri undir samkomulag við Vöku á Siglufirði um sameiningu félaganna og einstakra deilda Vöku þann 1. janúar 2008. Þetta er gert með þeim fyrirvara um að félagsmenn allra félaganna samþykki slíkar sameiningar. Lesa meira

  • Samrunaviðræður í gangi

    Verkalýðsfélagið Vaka
    Í dag fóru formenn Einingar-Iðju, Félags byggingamanna Eyjafirði, Félags málmiðnaðarmanna Akureyri, Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni og Sjómannafélags Eyjafjarðar, ásamt varaformanni Einingar-Iðju til fundar við fulltrúa Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði vegna frumviðræðna um samruna. Hugmyndin sem á að skoða er að félagar í Vöku gangi til liðs við framantalin stéttarfélög á Akureyri.
    Lesa meira

  • Baldvin Þorsteinsson til Þýskalands

    Baldvin Þorsteinsson

     

    Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson, skip Samherja, verður fluttur út til Þýskalands í sumar og mun framvegis gera út frá Cuxhaven. Um 26 menn eru í áhöfn skipsins og hefur flestum þeirra nú þegar verið boðin önnur vinna hjá fyrirtækinu.

    Lesa meira

  • Brim kaupir norskan risatogara

    Vesttind
    Útgerðarfélagið Brim hefur keypt norska
     frystiskipið Vesttind. Togarinn er    
     fjögurra ára gamall og verður með     
     stærri fiskiskipum íslenska flotans.   Lesa meira

  • Kleifabergið siglir

    Kleifarbergið siglir
    Brim hf hefur tekið við rekstri Kleifabergsins og fimmtudaginn 29. mars lagði skipið upp í sinn fyrsta róður eftir eigendaskiptin. Brim hf keypti skipið af útgerðinni Rammi, sem áður hét Þormóður Rammi Sæberg... Lesa meira

  • Læknar vilja þyrlu á Akureyri


    Á stjórnarfundi Læknafélags Íslands þann 27. mars sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Stjórn Læknafélags Íslands fer fram á það við stjórnvöld að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Akureyri.  Í nútímasamfélagi eru gerðar kröfur um að bráðveikum og slösuðum verði komið undir læknishendur á sem stystum tíma og að íbúar landsins sitji við sama borð. Þetta á að sjálfsögðu við um leitar- og björgunarstörf sem eru ríkur þáttur í starfsemi þyrluþjónustu Landhelgisgæslunnar...

    Lesa meira

  • Gildi besti lífeyrissjóðurinn!

    Gildi

    Gildi valinn besti lífeyrissjóðurinn á Íslandi annað árið í röð.
    Á árlegri verðlaunaafhendingu IPE (Investments & Pensions Europe Magazine) í París í gærkvöldi var Gildi útnefndur besti lífeyrissjóður á Íslandi annað árið í röð. Veitt eru verðlaun...

    Lesa meira

Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning