Læknar vilja þyrlu á Akureyri
Almennt - sunnudagur 1.apr.07 22:35 - Lestrar 2682

Á stjórnarfundi Læknafélags Íslands þann 27. mars sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Stjórn Læknafélags Íslands fer fram á það við stjórnvöld að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Akureyri. Í nútímasamfélagi eru gerðar kröfur um að bráðveikum og slösuðum verði komið undir læknishendur á sem stystum tíma og að íbúar landsins sitji við sama borð. Þetta á að sjálfsögðu við um leitar- og björgunarstörf sem eru ríkur þáttur í starfsemi þyrluþjónustu Landhelgisgæslunnar...
Á stjórnarfundi Læknafélags Íslands þann 27. mars sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Stjórn
Læknafélags Íslands fer fram á það við stjórnvöld að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Akureyri.
Í nútímasamfélagi eru gerðar kröfur um að bráðveikum og slösuðum verði komið undir læknishendur á sem stystum
tíma og að íbúar landsins sitji við sama borð. Þetta á að sjálfsögðu við um leitar- og björgunarstörf sem eru
ríkur þáttur í starfsemi þyrluþjónustu Landhelgisgæslunnar.
Björgunarþyrluþjónusta sem einungis er gerð út frá Reykjavík er of svifasein vegna langs flugtíma til að geta sinnt
bráðaþjónustu fyrir norður og austur hluta landsins. Miðhálendið skiptir landinu í tvö megin veðursvæði. Þyrluflug yfir
hálendið er oft erfitt vegna veðurskilyrða og ísingar. Lágflug með ströndum er tafsamt og getur verið varasamt.
Með því að staðsetja þyrlu á Akureyri er verið að stytta viðbragðstíma þyrlu til íbúa norður- og
austurlands verulega og einnig til hafsvæðisins úti fyrir. Vekja ber einnig athygli á norðurhluta hálendisins, en þar er umferð sívaxandi. Við
slys og þá sérstaklega sjóslys getur hver mínúta skipt þann máli, sem í háska hefur lent. Um mönnun lækna er
það að segja, að rekstur sjúkraflugs undanfarin ár með miðstöð á Akureyri hefur sýnt, að á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri er fullnægjandi mannafli fyrir þessa þjónustu.
Markmið sérhæfðar þyrluþjónustu sem þessarar hlýtur að vera að tryggja öllum landsmönnum sem besta
þjónustu. Það er álit stjórnar Læknafélags Íslands að allar þyrlur Landhelgisgæslunnar á einum stað á
suðvesturhorninu mæti ekki þessari kröfu”

