Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski og ýsu um 9-10%
Almennt - þriðjudagur 2.feb.10 08:09 - Lestrar 379
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var
ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra
aðila, um 9%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var hækkað um 10% og verð á karfa um 5%. Verð þetta gildir frá og
með deginum í dag, 1. febrúar 2010.