Sjómannafélag Eyjafjarðar

Heimasíða Sjómannafélags Eyjafjarðar

Aðrir styrkir og fl.

Styrkir eru greiddir einu sinni í mánuði, síðasta virkan dag mánaðarins. Allir reikningar eiga að vera löggidir virðisaukareikningar og í frumriti og stílaðir á félagsmann, nafn og kennitala. Verði félagsmaður uppvís að misnotkun er varða styrki úr félaginu, áskilur félagið sér rétt til að krefjast endurgreiðslu styrkja og getur viðkomandi félagsmaður átt von á því að í framhaldinu missi hann rétt sinn til styrkja.

Sjúkraþjálfun er greidd að fullu, þ.e. hluti félagsmanns, 70%.

Sjúkranudd er greitt að fullu, þ.e. hluti félagsmanns, 70%.

Þátttaka í kostnaði vegna heilsunudds, sama upphæð og í sjúkranuddi. Hámark 25 tímar á ári. Þátttaka í kostnaði vegna meðferðar hjá kírópraktorum, sama upphæð og í sjúkranuddi. Hámark 25 tímar á ári.

Greiddur er kostnaður félagsmanns að fullu vegna hjartaskoðunar.

Greiddur er kostnaður félagsmanns að fullu vegna krabbameinsleitar.

Þátttöku í kostnaði vegna glasa- og tæknifrjóvgunar / ættleiðingar 50% af reikningi, hámark 125.000,-

Greiðsla vegna viðtalsmeðferðar hjá sálfræðingi, geðlækni, félagsráðgjafa,2.500,- pr. tíma, hámark 25 tímar á ári.

Greiddur er kostnaður félagsmanns vegna göngugreiningar.

Þátttaka í kostnaði vegna kaupa á gleraugnaglerjum 50% af kostnaði, hámark 40.000,- á 3ja ára fresti.

Þátttaka í kostnaði vegna kaupa á linsum 50% af kostnaði, hámark 40.000,- á 3ja ára fresti. Þátttaka í kostnaði vegna laser aðgerða á augum, 75.000,- á hvort auga samtals 150.000,-Þátttaka í kostnaði vegna kaupa á heyrnartækjum, 65.000,- fyrir hvort eyra samtals 130.000,- á 5 ára fresti.

Þátttaka í kostnaði vegna dvalar á heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, dagpeningar í allt að 42 daga, samtals 63.000,-. Leggja þarf fram staðfestingu læknis um að dvölin hafi verið samkvæmt læknisráði ásamt staðfestingu um dvöl félagsmannsins á stofnunni. Greitt er að hámarki til hvers félagsmanns á þriggja ára fresti.

Þátttaka í kostnaði vegna dvalar á heilsustofnun, Detox meðferð dagpeningar í allt að 42 daga, samtals 63.000,-. Leggja þarf fram staðfestingu læknis um að dvölin hafi verið samkvæmt læknisráði ásamt staðfestingu um dvöl félagsmannsins á stofnunni. Greitt er að hámarki til hvers félagsmanns á þriggja ára fresti.

Greiddur kostnaður félagsmanns að fullu vegna leikfimi fyrir hjartveika, þ.e. hluti félagsmanns, 70%.

Greiddur kostnaður félagsmanns að fullu vegna leikfimi fyrir lungnaveika, þ.e. hluti félagsmanns, 70%.

Greiddur kostnaður félagsmanns að fullu vegna leikfimi fyrir gigtveika, þ.e. hluti félagsmanns, 70%.

Greiddur er heilsueflingarstyrkur til félagsmanna 75% af kostnaði, hámark 25.000,- á ári.

Eingreiddar dánarbætur vegna starfandi félagsmanna 400.000,-. Rétthafar bóta eru nánustu aðstandendur sjóðfélaga.

Eingreiddar dánarbætur vegna þeirra félagsmanna sem komnir eru á eftirlaun 300.000, rétthafar bóta eru nánustu aðstandendur sjóðfélaga.

Þátttaka í kostnaði vegna vímuefnameðferðar, dagpeningar í allt að 42 daga, samtals 63.000,- Ekki er greitt oftar til hvers félagsmanns en ein meðferð á þriggja ára fresti.

Tímalengd dagpeninga, skilyrði og tegundir:

Dagpeningar í allt að 180 daga vegna eigin veikinda eða slysa.

Veikindi maka: Dagpeningar í allt að 90 daga enda sé samfelld aðild a.m.k. 12 mánuðir eða lengri.

Veikindi barna: Dagpeningar í allt að 90 daga enda sé samfelld aðild a.m.k. 12 mánuðir eða lengri.

Þátttaka í kostnaði vegna dvalar á heilsustofnun NLFÍ: Dagpeningar í allt að 42 daga.

Áfengis- eða vímuefnameðferð: Dagpeningar í allt að 42 daga

, samtals 63.000,- Ekki er greitt oftar til hvers félagsmanns en ein meðferð á þriggja ára fresti.

Þátttaka í kostnaði vegna dvalar á heilsustofnun, Detox:

Dagpeningar í allt að 42 daga.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn um dagpeninga: Launaseðlar: Ljósrit af launaseðlum síðustu 6 mánaða.

Starfsvottorð frá vinnuveitanda þar sem fram kemur starfstími hans næstliðinna 6 mánuði og hvaða dag viðkomandi varð launalaus vegna veikinda/slyss og hve margir veikindadagar voru nýttir.

Ljósrit af vottorði frá lækni. Frumrit fylgir umsókn um dagpeninga til Tryggingastofnunar.

Yfirlit yfir aðrar greiðslur sem umsækjandi nýtur og teljast ígildi launa svo sem lífeyrisgreiðslur, örorkubætur eða tryggingabætur.

Skattkort, ella verða dagpeningar að fullu skattlagðir.

Til að sannreyna rétt sjóðfélaga þarf sjóðstjórn jafnframt upplýsingar um aðrar greiðslur ef þær eru fyrir hendi, svo sem frá Tryggingastofnun, lífeyrissjóði eða tryggingafélagi.

Í lengri veikindum ber sjóðfélaga að skila læknisvottorði á a.m.k. tveggja mánaða fresti.

Réttur hjá Tryggingastofnun: Jafnframt dagpeningagreiðslum frá Sjúkrasjóðnum eiga sjóðfélagar rétt á sjúkra- eða slysadagpeningagreiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins.

Tilkynningaskylda sjóðfélaga: Sjóðfélaga er skylt að láta sjóðinn vita þegar hann verður vinnufær á ný eða öðlast rétt til bóta frá öðrum aðilum svo sem lífeyrissjóði eða Tryggingastofnun að viðlögðum réttindamissi. Ofgreidda dagpeninga ber sjóðfélaga að endurgreiða sjóðnum.

Annað: Vegna veikinda maka eða barna skal fylgja með umsókn um dagpeninga vottorð frá lækni.

Þegar um er að ræða greiðslur vegna kostnaðar skal ávalt fylgja frumrit reiknings, stílað á nafn félagsmanns ásamt kennitölu.

Hámarks upphæðir styrkja á hverju almanaksári til hvers félagsmanns eru kr. 65.000,-



Þegar um er að ræða greiðslur vegna kostnaðar skal ávalt fylgja frumrit löggilts virðisaukareiknings stílaðan á nafn félagssmanns ásamt kennitölu hans.

Önnur atriði og þjónusta sem félagsmönnum stendur til boða:

Aðstoð við innheimtu vangreiddra launa.

Aðstoð og ráðgjöf við túlkun kjarasamninga.

Greitt er vegna aðstoðar við gerð skattskýrslu.

Greiddur er styrkur til félagsmanna sem taka meiraprófsnámskeið, allt að 100.000,-

Greiddur er styrkur til félagsmanna vegna náms og námskeiðskostnaðar, 75% hámark 60.000,-

Greiddur er styrkur til félagsmanna vegna tómstundanámskeiða, 50% hámark 18.000,-

Greiddur er styrkur til félagsmanna vegna kaupa á hjálpartækjum fyrir lestrar og rit stuðning 75% hámark 60.000,-

Ódýr gisting í lúxus orlofsíbúðum félagsins í Kópavogi.

Ódýra gistingu í orlofshúsi félagsins á Illugastöðum.

Seldir eru miðar í Hvalfjarðagöng.

Útilegukortið: félagsmenn greiða aðeins kr. 1.000,- fyrir kortið.

Veiðikortið: félagsmenn greiða aðeins kr. 1.000,- fyrir kortið.

Orlofsgreiðslur, gegn framvísun löggilts virðisaukareiknings um gistingu, ferð, leigu á vagni eða sumarhúsi sem ekki er fengið hjá öðru stéttarfélagi, greiðir félagið kr. 25.000,- Greiðsla til félagsmanns er háð því að hún sé farin á tímabilinu 1. maí til 15. september og að um sumarfrí félagsmannsins sé að ræða. Ekki er greitt yfir 75% af reikningi.

Lögfræðiaðstoð sem tengist vinnu félagsmanna.

Hámarksupphæð styrkja á hverju almanaksári til hvers félagsmanns er 65.000,-.

Eingreiddar dánarbætur, heyrnartæki, augnaðgerðir, glasa- og tæknifrjóvgun/ættleiðing og vímuefnameðferð eru ekki innifaldar í þessari upphæð.

Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning