Sjómannafélag Eyjafjarðar

Heimasíða Sjómannafélags Eyjafjarðar

Núpalind 6 - 3 hæð

Nýjar og glæsilegar orlofsíbúðir í Kópavogi  
   
Í byrjun febrúar 2001 tók Sjómannafélag Eyjafjarðar við þremur nýjum orlofsíbúðum í fjölbýlishúsi að Núpalind 6 í Kópavogi. Í stað þeirra seldi félagið eldri íbúðir í Reykjavík.

Nýju íbúðirnar í Kópavogi eru 100 fermetrar að stærð, þriggja herbergja og staðsettar á 2., 3. og 4. hæð hússins. Íbúðirnar eru búnar öllum þeim þægindum sem góðum orlofsíbúðum sæmir. Íbúðirnar eru til útleigu fyrir félagsmenn árið um kring en tryggara er að panta með góðum fyrirvara, enda mikil ásókn.

Þess má geta að Núpalind 6 er í hinum nýja kjarna höfuðborgarsvæðisins, steinsnar frá hinni glæsilegu verslunarmiðstöð, Smáralind, sem tekin var í notkun haustið 2001.

Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning