Flýtilyklar
Orlofssjóður
| Reglugerð fyrir Orlofssjóð Sjómannafélags Eyjafjarðar | |
| 1. gr. | Sjóðurinn heitir Orlofssjóður Sjómannafélags Eyjafjarðar. |
| 2. gr. | Tilgangur sjóðsins er: |
| Að stuðla að byggingu orlofsheimila og auðvelda fólki að njóta orlofsdvalar.
Tilganginum skal ná með því m.a.: |
|
| 3. gr. | Tekjur sjóðsins eru: |
| a) Iðgjöld atvinnurekenda samkvæmt kjarasamningum á hverjum tíma. b) Húsaleigutekjur vegna orlofshúsa og íbúða í eigu sjóðsins. c) Vaxtatekjur. d) Aðrar tekjur sem aðalfundur félagsins kann að ákveða hverju sinni. |
|
4. gr. |
|
| Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar er jafnframt stjórn Orlofssjóðs og annast fjárreiður hans. Ákvarðanir um sölu á eignum sjóðsins eða meiriháttar nðbyggingar skulu háðar samþykki félagsfundar. | |
| 5. gr. | |
| Laust fé Orlofssjóðs skal að jafnaði ávaxtað í starfandi banka eða sparisjóði á félagssvæði Sjómannafélags Eyjafjarðar, en heimilt er að lána það um skemmri tíma til annarra verkefna á vegum félagsins, enda er þá félagssjóður ábyrgur fyrir endurgreiðslu þegar Orlofssjóður þarf á fé sínu að halda. | |
| 6. gr. | |
| Þegar svo ber við að fleiri félagsmenn sækja um afnot af orlofshúsum eða íbúðum sjóðsins en hægt er að verða við á hverjum tíma, getur stjórn sjóðsins sett sér starfsreglur sem m.a. fela í sér að ákveðinn tími þurfi að líða milli þess sem sami félagsmaður nýtur hlunninda frá sjóðnum. | |
| 7. gr. | |
| Breytingar á reglugerð þessari má aðeins gera á aðalfundi og ná þær
því aðeins samþykki að 2/3 hlutar atkvæða séu þeim fylgjandi.
Reglugerðin þannig samykkt á aðalfundi Sjómannafélags Eyjafjarðar 28. desember 1991 |
Veðrið
Akureyri
SSA 11 m/s
10 °C
Reykjavík
SSA 12 m/s
8 °C
Ísafjörður
S 4 m/s
8 °C
Egilsstaðir
SSV 2 m/s
-3 °C
Vestmannaeyjabær
S 10 m/s
8 °C
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort
Póstlistar
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni
Heimsóknir
Í dag: 144
Samtals: 427641
Samtals: 427641

