Sjómannafélag Eyjafjarðar

Heimasíða Sjómannafélags Eyjafjarðar

Ráðgjafar í starfsendurhæfingu

Frá 1. mars 2009 hefur Elsa Sigmundsdóttir starfað í 100% starfi sem ráðgjafi hjá sjúkrasjóðum ASÍ stéttarfélaga í Eyjafirði, þau eru Eining-Iðja, Fagfélagið, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólk Akureyri og nágrenni, Félag vélstjóra og málmtæknimanna, Rafvirkjafélag Norðurlands, Sjómannafélag Eyjafjarðar og Sjómannafélag Ólafsfjarðar. Um er að ræða samvinnuverkefni stéttarfélaganna og Virk, Starfsendurhæfingarsjóðs.

Þann 1. nóvember 2009 bættust opinberu félögin við sem greiðendur í sjóðinn og þá hóf Nicole Kristjánsson störf sem ráðgjafi í 50% stöðu. Opinberu félögin eru: Kjölur/BSRB, BHM og KÍ.

 

 
Elsa
   
Nicole

Elsa og Nicole eru starfmenn Einingar-Iðju og eru með aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Elsa er með netfangið elsa@ein.is og Nicole er með netfangið nicki@ein.is. Hægt er að ná í þær í síma 460 3600.

Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.

Hlutverk ráðgjafa er að veita einstaklingum aðstoð við að viðhalda og efla virkni til vinnu. Hann býður öllum félagsmönnum sem sækja um dagpeningagreiðslur hjá sjúkrasjóði upp á þjónustu og aðstoð, einnig þeim félagsmönnum sem geta ekki eða eiga erfitt með að sinna störfum sínum eins og er vegna heilsufars. Það geta verið einstaklingar sem eru í veikindaleyfi eða jafnvel ennþá í starfi.

Stuðningurinn tekur mið af þörfum, væntingum og getu hvers og eins og felst í.....

Ráðgjöf og hvatningu sem tekur mið af aðstæðum einstaklings
Mat á starfshæfni sem tekur mið af bæði heilsufarslegum og félagslegum þáttum.
Aðstoð við gerð og eftirfylgni einstaklingsbundinnar áætlunar um aukna virkni, heilsueflingu og endurhæfingu.
Aðstoð og leiðbeiningum til að tryggt sé að viðkomandi einstaklingur fái það sem honum ber innan kerfisins.
Aðstoð frá sérfræðingum eftir mat á stöðu einstaklings hverju sinni. Hér getur t.d. verið um að ræða aðstoð lækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa o.s.frv.
Aðstoð í formi stuðnings til náms sem hefur það að markmiði að auka vinnugetu einstaklings.
Aðstoð í formi skipulagðrar starfsendurhæfingar þar sem einstaklingurinn, atvinnurekandinn og mismunandi fagaðilar vinna saman við að finna leiðir til aukinnar vinnugetu.

Sjá nánar um Starfsendurhæfingu á vef VIRK  www.virk.is

Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning