Flýtilyklar
Sjúkrasjóður - reglugerð
REGLUGERÐ SJÚKRASJÓÐS
SJÓMANNAFÉLAGS EYJAFJARÐAR.
1. gr. Nafn sjóðsins og heimili:1.1 Sjóðurinn heitir Sjúkrasjóður Sjómannafélags Eyjafjarðar, skammstafað Sjúkrasjóður SE.
1.2 Sjúkrasjóður SE er stofnaður samkvæmt samningi SE og LÍÚ.
1.3 Sjúkrasjóður SE er eign SE. Heimili hans og varnarþing er á Akureyri.
2. gr. Verkefni sjóðsins:
2.1 Verkefni sjóðsins er að veita sjóðsfélögum Sjúkrasjóðs SE
fjárhagsaðstoð í veikinda-, slysa- og dánartilvikum. Sjóðsfélagar eru þeir sem greitt hafa, eða fyrir
þá hafa verið greidd, iðgjöld til sjóðsins.
2.2 Verkefni sjóðsins er ennfremur að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum sem snerta öryggi og heilsufar.
3. gr. Tekjur:
3.1 Tekjur sjóðsins eru skv. kjarasamningi SE sbr. 7. gr. laga nr. 19/1979, samningsbundin gjöld atvinnurekenda til
sjóðsins.
3.2. Vaxtatekjur og annar arður.
3.3 Gjafir, framlög og styrkir.
3.4 Aðrar tekjur sem aðalfundur félagsins/sjóðsins kann að ákveða hverju sinni.
4. gr. Stjórn og rekstur:
4.1 Stjórn sjóðsins er skipuð þremur mönnum og er formaður félagsins
sjálfkjörinn formaður sjóðsstjórnar. Hinir tveir stjórnarmennirnir og þrír varamenn skulu kosnir með sama hætti og til sama tíma
og stjórn SE og ber stjórnin ábyrgð á öllum fjárreiðum sjóðsins.
4.2 Stjórnun sjóðsins skal vera í samræmi við þau sjónarmið sem gilda skv. almennum stjórnsýslureglum.
4.3 Heimilt er að fela skrifstofu SE fjárreiður og umsjón með sjóðnum. Þó skal halda bókhaldi sjóðsins aðskildu frá
öðrum fjárreiðum SE.
4.4 Ávallt skulu liggja fyrir gögn um rétt einstaklings til greiðslu úr sjóðnum.
5. gr. Bókhald, reikningar og endurskoðun:
5.1 Reikningar sjóðsins skulu lagðir fram áritaðir af félagslegum
skoðunarmönnum og löggiltum endurskoðanda fyrir aðalfund SE. Reikningsár sjóðsins er það sama og félagsins.
5.2 Endurskoðun ber að framkvæma af löggiltum endurskoðanda eða endurskoðunarfélagi í samræmi við góða endurskoðunarvenju
sem í gildi er á hverjum tíma.
5.3 Í ársreikningi eða skýringum með honum skal sundurliða sérstaklega kostnað vegna hvers og eins bótaflokks skv. 12.gr.
5.4 Um bókhald, reikninga og endurskoðun fer að öðru leyti skv. viðmiðunarreglum um bókhald og ársreikninga stéttarfélaga og
landssambanda sbr. 3.mgr. 44.gr. laga ASÍ eins og þær reglur eru á hverjum tíma.
6. gr. Úttekt óháðra eftirlitsaðila:
6.1 Ár hvert, eigi síðar en 31. maí, skulu endurskoðaðir
ársreikningar sjóðsins sendir skrifstofu ASÍ.
6.2 Fimmta hvert ár að minnsta kosti skal stjórn sjóðsins fá tryggingafræðing eða löggiltan endurskoðanda til þess að meta
framtíðarstöðu sjóðsins og semja skýrslu til stjórnar um athugun sína. Stjórn sjóðsins skal senda miðstjórn ASÍ
úttekt þessa með ársreikningi sjóðsins.
6.3 Við mat á framtíðarstöðu sjóðsins skal tilgreina rekstrarkostnað, ávöxtun sjóðsins og hvort sjóðurinn geti
staðið við skuldbindingar sínar. Sérstaka grein skal gera fyrir áhrifum á afkomu sjóðsins vegna ákvarðana skv. greinum 12.8 og
12.9.
6.4 Geti sjóðurinn ekki staðið við skuldbindingar sínar skv. niðurstöðu úttektarinnar ber stjórn sjóðsins að leggja fyrir
aðalfund tillögu að breytingu á reglugerð sem tryggir að sjóðurinn geti staðið við skuldbindingar sínar.
7. gr. Ávöxtun sjóðsins:
7.1 Heimilt er að ávaxta fé sjóðsins með eftirfarandi hætti;
a) í ríkisskuldabréfum eða skuldabréfum sem tryggð
eru með ábyrgð ríkissjóðs,
b) með kaupum á markaðsskráðum verðbréfum,
c) í bönkum eða sparisjóðum,
d) í fasteignum tengdum starfsemi sjóðsins,
e) á annan þann hátt er stjórn sjóðsins metur tryggan sbr. 11.gr. viðmiðunarreglna um bókhald og ársreikninga
stéttarfélaga og landssambanda eins og þær eru á hverjum tíma sbr. 41.gr. laga ASÍ.
8.gr. Ráðstöfun fjármuna:
8.1 a) Ávallt skal þess gætt að ráðstöfun fjármuna
sjóðsins brjóti ekki í bága við tilgang hans eða verkefni.
b) Þegar um er að ræða ráðstöfun fjármuna til verkefna sem ekki falla undir megintilgang sjóðsins með beinum hætti skal
tryggt að um eðlilega ávöxtun þess fjármagns sé að ræða, sbr. a, b og c lið greinar 7.1.
9. gr. Grundvöllur styrkveitinga úr sjúkrasjóði:
9.1 Rétt til styrkveitinga úr sjóðnum eiga þeir sem
fullnægja eftirtöldum skilyrðum, sbr. þó 10. gr.
9.2 Einungis þeir sem sannanlega greiða eða er greitt af til sjóðsins og verið er að greiða fyrir til sjóðsins þegar réttur til
aðstoðar myndast.
9.3 Þeir sem greidd hafa verið af til sjóðsins 1% iðgjöld í a.m.k. síðustu 6 mánuði.
9.4 Hafi iðgjöld til sjúkrasjóðs ekki verið greidd vegna sjóðfélaga, en hann getur fært sönnur á, að
félagsgjöld til viðkomandi aðildarfélags hafi samkvæmt reglulega útgefnum launaseðlum verið dregin af launum hans síðustu 6
mánuði, skal hann njóta réttar eins og iðgjöld til sjúkrasjóðs hafi verið greidd.
10. gr. Samskipti sjúkrasjóða:
10.1 Sá sem öðlast hefur rétt til greiðslu sjúkra- og slysadagpeninga úr
sjúkrasjóði eins verkalýðsfé-lags, öðlast þann rétt hjá nýjum sjóði skv. þeim reglum sem þar gilda eftir
að hafa greitt í þann sjóð í einn mánuð, enda hafi hann fram að því átt rétt hjá fyrri sjóðnum.
10.2 Vinni maður á fleiri en einum vinnustað og hafi verið greitt í fleiri en einn sjúkrasjóð þegar sótt er um greiðslu, skal
umsækjandi greina frá því í hvaða sjóði hann hefur greitt og er heimilt að fresta greiðslu bóta þangað til fyrir liggur
staðfesting annarra sjóða á því að um¬sækjandi hafi ekki sótt um greiðslur þaðan. Sjúkrasjóðurinn skal leita
slíkrar staðfestingar og gefa síðan öðrum sjóðum yfirlit yfir þær bætur sem greiddar eru vegna umsækjandans, tegund og
fjárhæð bóta.
11. gr. Geymd réttindi:
11. 1 Heimilt er að veita þeim sem gengst undir starfsþjálfun, sækir námskeið eða stundar
nám í allt að 24 mánuði og hefur síðan aftur störf á samningssviði aðildarfélaga ASÍ, endurnýjaðan
bótarétt þegar greitt hefur verið til sjóðsins í einn mánuð, hafi umsækjandi áður verið fullgildur
sjóðfélagi. Sama gildir um þá sem hverfa frá vinnu vegna veikinda eða af heimilisástæðum.
11.2 Þeir sjóðfélagar sem fara í lögbundið fæðingarorlof halda áunnum réttindum sínum hefji þeir þegar að
loknu fæðingarorlofi aftur störf á samningssviði aðildarfélaga ASÍ enda ákveði viðkomandi að viðhalda rétti sínum
með greiðslu félagsgjalds í fæðingarorlofi.
12. gr. Styrkveitingar:
12.1 Dagpeningar í veikinda- og slysaforföllum í 180 daga (6 mánuði), að loknum greiðslum skv. veikinda- og
slysaréttarákvæðum kjarasamninga. Dagpeningar skulu að viðbættum bótum almannatrygginga, greiðslum úr slysatryggingu launafólks eða
annarri lögbundinni tryggingu, ekki nema lægri fjárhæð en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á
síðustu 6 mánuðum. Á því tímabili í slysa- eða veikindatilfellum þegar sjóðfélagi fær greidda kauptryggingu
skal sjóðurinn greiða það sem á vantar til að laun sjóðfélaga nái hámarksgreiðslu dagpeninga eins og grein 12.6 kveður
á um.
12.2 Dagpeninga í 90 daga (3 mánuði), að loknum kjarasamningsbundnum greiðslum launagreiðanda vegna langveikra og alvarlega fatlaðra barna. Greiðslur
skulu ekki nema lægri fjárhæð m.v. starfshlutfall sjóðfélaga en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af
á síðustu 6 mánuðum. Með langveikum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlegan og/eða langvinnan
sjúkdóm og þarfnast sérstakrar umönnunar. Með alvarlega fötluðum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast
með alvarlega greindarskerðingu, geðraskanir eða alvarlega líkamlega hömlun og þarfnast sérstakrar umönnunar.
12.3 Dagpeninga í 90 daga (3 mánuði), vegna mjög alvarlegra veikinda maka. Greiðslur skulu ekki nema lægri fjárhæð m.v. starfshlutfall
sjóðfélaga en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum.
12.4 Eingreiddar dánarbætur við andlát virks og greiðandi sjóðfélaga sem nemi 400.000.- krónum. Eingreiddar dánarbætur til
lífeyrisþega nemi 300.000,- krónum. Rétthafar bóta eru nánustu aðstandendur sjóðfélaga. Bótafjárhæð skal
endurskoða árlega.
12.5 Daga fjölda greiddra dagpeninga skv. 12.1 lið, til þeirra sem greitt er hlutfallslega lægra iðgjald af en 1%, er heimilt að skerða í sama hlutfalli
og iðgjaldið er lægra en 1%.
12.6 Dagpeninga skv. 12.1, 12.2 og 12.3 er heimilt að miða við meðaltal heildarlauna á síðustu 12 mánuðum í stað síðustu 6
mánaða, hafi tekjur sjóðfélaga breyst verulega til hækkunar eða lækkunar á viðmiðunartímabilinu. Jafnframt er heimilt að
ákveða hámark dagpeninga skv. 12.1, 12.2 og 12.3 sem þó sé ekki lægra en 400.000.- á mánuði.
12.7 Réttur skv. 12.1, 12.2 og 12.3 endurnýjast á hverjum 12 mánuðum, hlutfallslega eftir því sem hann er nýttur, talið frá
þeim degi sem dagpeningagreiðslum líkur hverju sinni og greiðslur iðgjalda hefjast að nýju.
12.8 Heimilt er stjórn sjóðsins að veita styrki til sjóðsfélaga í formi forvarnar- og endurhæfingarstyrkja og styrkja vegna sjúkra- og
slysakostnaðar. Ennfremur er stjórn sjóðsins heimilt að stofna til annarra styrkja eða greiðslna.
12.9 Styrkir til stofnana og félagasamtaka skulu ákveðnir af stjórn sjóðsins hverju sinni skv. gr. 2.2.
12.10 Slysadagpeningar skv. grein þessari greiðast ekki vegna bótaskyldra slysa og atvinnusjúkdóma, þ.m.t. bifreiðaslysa, þar sem bætur
greiðast skv. skaðabótalögum.
13. gr. Lausn frá greiðsluskyldu:
13.1 Ef farsóttir geisa getur sjóðsstjórn leyst sjóðinn frá greiðsluskyldum
sínum um stundarsakir. Einnig getur sjóðsstjórn ákveðið að lækka um stundarsakir upphæð dagpeninga ef afkomu sjóðsins
virðist hætta búin.
14. gr. Tilhögun greiðslna úr sjóðnum:
14.1 Afgreiðsla sjóðsins skal vera á skrifstofu SE og greiðir
sjóðurinn allan kostnað sem af rekstri hans leiðir.
14.2 Stjórn sjóðsins setur nánari reglur um fyrirkomulag á greiðslu dagpeninga og aðra starfstilhögun.
14.3 Stjórn sjóðsins og starfsmenn hans skulu hafa að leiðarljósi almennar stjórnsýslureglur um meðferð upplýsinga um
umsóknir og afgreiðslu sjóðsins.
14.4 Umsóknum skal skilað á því formi sem stjórn sjóðsins ákveður og þeim fylgi nauðsynleg vottorð sem tryggja
réttmæti greiðslna.
15.gr. Fyrning bótaréttar:
15.1 Réttur til dagpeninga í veikinda og slysaforföllum skv. gr.12.1 og 12.4 fellur niður
sé þeirra ekki vitjað innan 12 mánaða frá því rétturinn stofnaðist.
15.2 Réttur til styrkja skv. reglugerð þessari fellur að öðru leyti niður sé þeirra ekki vitjað innan 12 mánaða frá
því rétturinn stofnaðist.
16. gr. Endurgreiðsla iðgjalda:
16.1 Iðgjöld til sjóðsins endurgreiðast ekki.
17. gr. Upplýsingaskylda:
17.1 Stjórn sjóðsins er skylt að upplýsa sjóðsfélaga um rétt þeirra til
aðstoðar sjóðsins á aðgengilegan hátt m.a. með útgáfu bæklinga, dreifirita og/eða á heimasíðu félagsins.
18. gr. Breyting á fjárhæðum og styrkjum:
18.1 Stjórn sjóðsins skal leggja fyrir aðalfund breytingar á almennum
reglum um fjárhæðir styrkja sem sjóðurinn greiðir.
19. gr. Breytingar á reglugerðinni:
19.1 Breytingar á reglugerðinni verða aðeins gerðar á aðalfundi og þurfa
þær að vera samþykktar með meirihluta greiddra atkvæða fundarins. Slíkrar tillögu skal getið í fundarboði.
19.2 Breytingar á reglugerðinni skulu sendar skrifstofu ASÍ þegar og þær hafa verið samþykktar á aðalfundi.
Þannig samþykkt á framhaldsaðalfundi Sjómannafélags Eyjafjarðar þann 16. apríl 2010.
Veðrið
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort
Póstlistar
Á næstunni
Heimsóknir
Samtals: 427642

