Flýtilyklar
Sumabústaður
| Sumarbústaður á Illugastöðum | ||
| Félagið á einn sumarbústað (hús nr. 9) í sumarhúsabyggðinni á
Illugastöðum í Fnjóskadal, en þar er rómuð aðstaða til orlofsdvalar. Bústaðurinn var algjörlega endurnýjaður að innan fyrir ekki löngu síðan og er i húsinu allur húsbúnaður, sængurföt og annað sem til þarf. Við húsið er gasgrill. Alls geta 8 gist í bústaðnum í einu. Í júni, 2005, var settur heitur pottur við bústaðinn og veröndin stækkuð til muna þannig að nú er öll aðstað bæði úti og inni hin glæsilegasta. Á Illugastöðum er rekin þjónustumiðstöð yfir sumartímann. Þar er sundlaug, heitur pottur, minigolf og ýmislegt annað til að stytta stundirnar í sumarylnum. Illugastaðir eru líka frábærlega staðsettir gagnvart gönguferðum, stangveiði og skoðunarferðum um Þingeyjarsýslur og Eyjafjörð. Bústaðurinn á Illugastöðum er til útleigu árið um kring. Tekið er á móti pöntunum vegna sumar - og vetrardvalar í bústaðnum á skrifstofu Sjómannafélags Eyjafjarðar. Einnig er hægt að panta og greiða fyrir leigu í gegn um félagavefinn sem er hér á forsíðu heimasíðunnar. Úthlutun fyrir sumarmánuðina þe. júní júlí og ágúst fer fram fyrstu dagana í maí, ár hvert, og sitja þeir fyrir í úthlutun sem ekki hafa dvalið í bústaðnum síðustu þrjú ár fyrir úthlutun. |
Veðrið
Akureyri
SSA 11 m/s
10 °C
Reykjavík
SSA 12 m/s
8 °C
Ísafjörður
S 4 m/s
8 °C
Egilsstaðir
SSV 2 m/s
-3 °C
Vestmannaeyjabær
S 10 m/s
8 °C
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort
Póstlistar
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni
Heimsóknir
Í dag: 145
Samtals: 427642
Samtals: 427642

