Ákvörðun úrskurðarnefndar 1. nóv. og 1. des. 2013

Samkvæmt ákvörðun úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna hækkar viðmiðunarverð í viðskipum milli skyldra aðila um 5% á óslægðum þorski, óslægðri ýsu og karfa. Viðmiðunarverð á ufsa, slægðum og óslægðum, hækkar um 2%. Framangreind breyting gildir frá og með 2. desember 2013.

Samkvæmt ákvörðun úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna hækkar viðmiðunarverð á óslægðri ýsu um 10%, viðmiðunarverð á karfa um 5% og viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum ufsa um 2% frá og með 1. nóvember 2013.