Kjarasamningur fyrir smábáta samþykktur.

Atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn milli SSÍ og LS er nú lokið og voru atkvæði talin í húsakynnum ríkissáttasemjara þann 5. október 2012.

Samningurinn var samþykktur af báðum aðilum. Hjá aðildarfélögum SSÍ fór atkvæðagreiðslan þannig að 64,3% þeirra sem afstöðu tóku samþykktu samninginn. 35,7% sögðu nei.

Samkvæmt framansögðu er því kominn á samningur milli Sjómannasambands Íslands og Landssambands smábátaeigenda.