Ný stjórn hjá félaginu

Trausti Jörundarson nýr formaður SjóEy
Trausti Jörundarson nýr formaður SjóEy

Aðalfundur félagsins var haldin þann 8. mars síðastliðinn, gestir fundarins voru þeir Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambands Íslands og Hólmgeir Jónsson framkvæmdastjóri sambandsins.
Ræðan Valmundar gekk að mestu út á það hvernig gengi við að klára að semja um þær bókanir sem gerðar voru þegar síðast var samið. Fram kom að þokkalegur gangur hafi verið í þessum viðræðum en enn væru veigamiklir þættir eftir. Þá minnti hann á að núgildandi kjarasamningur rennur út 1. desember nk. og hvatti menn til að hefja undirbúning að kröfugerð sem fyrst.

Erindi Hólmgeirs sem hann nefndi "drauga fortíðar - áhrif í nútíð". Mjög fróðlegt og átti sannarlega vel við og gott innlegg í þá vinnu sem framundan er við kröfugerðina. 

Ágætis mæting var á fundinn en alltaf má samt betur gera. Konráð Alfreðsson formaður félagsins til 30 ára lét af störfum ásamt öllum úr hans stjórn og Trausti Jörundarson tók við sem nýr formaður ásamt nýrri stjórn.
Skipan stjórnar má sjá hér.