Samrunaviðræður í gangi

Verkalýðsfélagið Vaka
Verkalýðsfélagið Vaka
Í dag fóru formenn Einingar-Iðju, Félags byggingamanna Eyjafirði, Félags málmiðnaðarmanna Akureyri, Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni og Sjómannafélags Eyjafjarðar, ásamt varaformanni Einingar-Iðju til fundar við fulltrúa Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði vegna frumviðræðna um samruna. Hugmyndin sem á að skoða er að félagar í Vöku gangi til liðs við framantalin stéttarfélög á Akureyri.

Málið fer nú til frekari umfjöllunar í stéttarfélögunum, m.a. var kosið í undurbúninganefnd sem mun skoða málið enn frekar á næstunni og var ákveðið að hittast aftur áður en langt um líður. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, segir á vef félagsins  að fulltrúar félaganna frá Akureyri hefðu hitt fulltrúa frá Vöku og farið yfir stöðuna. "Það var góður gangur í þessu og á fundinum var m.a. kosið í undurbúningsnefnd sem í eiga sæti, ég, Úlfhildur, formaður FVSA, og Signý, formaður Vöku. Nefndin hefur þegar tekið til starfa og munum við á næstunni fara yfir alla fleti málsins áður en formennirnir hittast á ný til nánari viðræðna."