Skrifað undir samkomulag um sameiningu

Í dag, á ársfundi ASÍ, skrifuðu formenn Sjómannafélags Eyjafjarðar, Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, Einingar-Iðju, Félags byggingamanna Eyjafirði og Félags málmiðnaðarmanna Akureyri undir samkomulag við Vöku á Siglufirði um sameiningu félaganna og einstakra deilda Vöku þann 1. janúar 2008. Þetta er gert með þeim fyrirvara um að félagsmenn allra félaganna samþykki slíkar sameiningar.

Þann 8. nóvember nk. verður haldinn kynningarfundur á Siglufirði og kosningar um sameiningu munu fara fram 15. og 16. nóvember á Akureyri og dagana 15., 16. og 19. nóvember á Siglufirði. Talning atkvæða mun fara fram 20. nóvember og þá mun koma í ljós hvort af sameiningu verður um næstu áramót.  

Ef öll aðildarfélög að þessu samkomulagi samþykkja sameininguna þá færu þeir sem nú eru í verslunarmannadeild Vöku inn í FVSA. Félögin skuldbinda sig einnig til að reka sameiginlega þjónustuskrifstofu á Siglufirði sem yrði mönnuð a.m.k. einum starfsmanna í 75% starfshlutfalli. Eining-Iðja mun sjá um rekstur hennar, en hann yrði fjármagnaður í hlutfalli við stærð einstakra deilda og félaga. Núverandi starfsmaður Vöku mun halda áfram starfi sínu með öllum réttindum og skyldum.