Stjórnarkjör

Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar hefur ákveðið að kjör til stjórnar félagsins til næstu tveggja ára fari fram að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu í samræmi við lög félagsins og reglugerð ASÍ.

Listinn skal innifela 5 manna stjórn og 3 menn til vara, 7 manna trúnaðarráð og 7 til vara, 2 menn í kjörstjórn og 1 til vara. Framboðslistum skal skila til skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri, eigi síðar en kl. 12.00 miðvikudaginn 5. desember 2018.

 Hverjum lista skulu fylgja meðmæli 26 fullgildra félagsmanna.

Akureyri 9. nóvember 2018

Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar.