Stjórnarkjör 2025-2027

Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar hefur ákveðið að kjör, 5 manna stjórnar og 3ja til vara, 7 manna trúnaðarráð og 7 til vara, 2 menn í kjörstjórn og 1 til vara, 2 menn í fulltrúaráð Gildis- lífeyrissjóðs fyrir næstu tvö starfsár, fari fram að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu í samræmi við lög félagsins og reglugerð ASÍ.

Framboðslistum skal skila til skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri, eigi síðar en kl. 12.00 miðvikudaginn 12. febrúar 2025.

 Hverjum lista skulu fylgja meðmæli 20 fullgildra félagsmanna.

 Akureyri 10. janúar 2025

Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar.