Stjórnarkjör

Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar hefur ákveðið að kjör, 5 manna stjórnar og 3ja til vara, 7 manna trúnaðarráð og 7 til vara, 2 skoðunarmenn og 1 til vara, 2 menn í kjörstjórn og 1 til vara, 4 menn í fulltrúaráð Gildis- lífeyrissjóðs fyrir næstu tvö starfsár, fari fram að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu í samræmi við lög félagsins og reglugerð ASÍ. 

Framboðslistum skal skila til skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri, eigi síðar en kl. 12.00 föstudaginn 15. mars 2013.

Hverjum lista skulu fylgja meðmæli 40 fullgildra félagsmanna.

Akureyri 28. febrúar 2013 
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar.