Vegleg gjöf til Mæðrastyrksnefndar Akureyrar

Sjö verkalýðsfélög í Eyjafirði afhentu föstudaginn 26. nóvember sl. Mæðrastyrksnefnd Akureyrar styrk að upphæð kr. 1.820.000. Jóna Berta Jónsdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Mæðrastyrksnefndarinnar.

Jóna Berta þakkaði fyrir og sagði að þetta kæmi að góðum notum Hún sagði einnig að þeir sem þurfa á aðstoð að halda þyrftu að hringja í hana í síma 868 3143 dagana 6. til 8. desember nk. Einnig verður hægt að hringja í síma nefndarinnar 462 4617. Afhending fer svo fram dagana 17. til 20. desember í Íþróttahöllinni á Akureyri þar sem Mæðrastyrksnefnd er til húsa. Gengið inn að vestan frá Þórunnarstræti. Það er alltaf opið á þriðjudögum frá kl. 13:00 til 18:00 og þá daga sem úthlutun fer fram verður opið á sama tíma.

Rétt er að vekja athygli á því að Mæðrastyrksnefnd Akureyrar aðstoðar fólk um allan Eyjafjörð, frá Siglufirði að Grenivík, og starfar allan ársins hring þótt mestu annirnar séu nú eins og jafnan áður í kringum jólahátíðina. “Allar ábendingar eru vel þegnar ef fólk veit um einhvern sem þarf aðstoð en af einhverjum ástæðum getur ekki óskað eftir henni,” segir Jóna Berta. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofur stéttarfélaga með slíkar ábendingar og verður þeim þá komið áfram til Mæðrastyrksnefndar.

Félögin sjö sem færðu nefndinni styrk eru Eining-Iðja, Fagfélagið, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrennis, Sjómannafélag Eyjafjarðar, Sjómannafélag Ólafsfjarðar og Verkstjórafélag Akureyrar og nágrennis.

Ef einhverjir fleiri vilja leggja nefndinni lið þá er hægt að leggja inn á reikning Mæðrastyrksnefndar í Arion banka. Reikningsnúmerið er 0302-13-300929 og kennitalan er 460577-0209. Munið, margt smátt gerir eitt stórt.

Á myndinni eru Jóna Berta Jónsdóttir og Björg Hansen, fulltrúar Mæðrastyrksnefndar, ásamt fulltrúum félaganna sjö sem færðu nefndinni gjöfina. Talið frá vinstri. Heimir Kristinsson, Björn Snæbjörnsson, Eggert Jónsson, Konráð Alfreðsson, Jóna Berta Jónsdóttir, Hákon Hákonarson, Björg Hansen, Gunnar Kristinsson og Úlfhildur Rögnvaldsdóttir.