Vegleg gjöf til Mæðrastyrksnefndar Akureyrar

Á myndinni eru Jóna Berta Jónsdóttir og Björg Hansen, fulltrúar Mæðrastyrksnefndar, ásamt nokkrum fu…
Á myndinni eru Jóna Berta Jónsdóttir og Björg Hansen, fulltrúar Mæðrastyrksnefndar, ásamt nokkrum fulltrúum félaganna sjö sem færðu nefndinni gjöfina.
Sjö verkalýðsfélög í Eyjafirði afhentu föstudaginn 25. nóvember sl. Mæðrastyrksnefnd Akureyrar styrk að upphæð kr. 1.770.000. Jóna Berta Jónsdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Mæðrastyrksnefndarinnar. Sjö verkalýðsfélög í Eyjafirði afhentu föstudaginn 25. nóvember sl. Mæðrastyrksnefnd Akureyrar styrk að upphæð kr. 1.770.000. Jóna Berta Jónsdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Mæðrastyrksnefndarinnar. Jóna Berta þakkaði fyrir og sagði að þetta kæmi að góðum notum Hún sagði einnig að þeir sem þurfa á aðstoð að halda þyrftu að koma í húsnæði Mæðrastyrksnefndar dagana 8. til 10. desember nk. milli kl. 13 og 17 og skrá sig. Þeir sem ekki geta mætt á svæðið geta hringt í síma 868 3143 eða 460 4617 á sama tíma. Afhending fer svo fram dagana 16. til 19. desember í Íþróttahöllinni á Akureyri þar sem Mæðrastyrksnefnd er til húsa. Gengið inn að vestan frá Þórunnarstræti. Það er alltaf opið á þriðjudögum frá kl. 13:00 til 18:00 og þá daga sem úthlutun fer fram verður opið á sama tíma. Rétt er að vekja athygli á því að Mæðrastyrksnefnd Akureyrar aðstoðar fólk um allan Eyjafjörð,frá Siglufirði að Grenivík, og starfar allan ársins hring þótt mestu annirnar séu nú eins og jafnan áður í kringum jólahátíðina. “Allar ábendingar eru vel þegnar ef fólk veit um einhvern sem þarf aðstoð en af einhverjum ástæðum getur ekki óskað eftir henni,” segir Jóna Berta. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofur stéttarfélaga með slíkar ábendingar og verður þeim þá komið áfram til Mæðrastyrksnefndar. Félögin sjö sem færðu nefndinni styrk eru Eining-Iðja, Fagfélagið, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrennis, Sjómannafélag Eyjafjarðar, Sjómannafélag Ólafsfjarðar og Verkstjórafélag Akureyrar og nágrennis. Ef einhverjir fleiri vilja leggja nefndinni lið þá er hægt að leggja inn á reikning Mæðrastyrksnefndar í Arion banka. Reikningsnúmerið er 0302-13-175063 og kennitalan er 460577-0209. Munið, margt smátt gerir eitt stórt. Á myndinni eru Jóna Berta Jónsdóttir og Björg Hansen, fulltrúar Mæðrastyrksnefndar, ásamt nokkrum fulltrúum félaganna sjö sem færðu nefndinni gjöfina. Talið frá vinstri. Björg Hansen, Björn Snæbjörnsson, Hákon Hákonarson, Jóna Berta Jónsdóttir, Konráð Alfreðsson, Úlfhildur Rögnvaldsdóttir og Heimir Kristinsson.