Ákvörðun úrskurðarnefndar um fiskverð 2. september og 1. október 2013

Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 2. september 2013 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á ufsa í viðskiptum milli skyldra aðila um 3%. Ákveðið var jafnframt að hækka viðmiðunarverð á karfa í viðskiptum milli skyldra aðila um 5%. Framangreindar ákvarðanir gilda frá 2. september 2013.

Á fundi í úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka viðmiðunarverð á slægðum þorski í viðskiptum milli skyldra aðila um 5% frá og með 1. október 2013. Jafnframt var ákveðið að hækka viðmiðunarverðið á óslægðum þorski í viðskiptum milli skyldra aðila um 10% frá sama tíma.