Auglýsing um orlofshús, orlofsíbúðir, styrki og fl.

Frá og með mánudeginum 4. maí nk. verður opnað fyrir pantanir á orlofshúsi félagsins nr. 9 á Illugastöðum í Fnjóskadal. Leiga hefst föstudaginn 5. júní. Þeir sem ekki hafa fengið leigt í sumarhúsinu sl. 3 ár sitja fyrir til kl. 12 mánudaginn 11. maí og er eingöngu hægt að panta leigu þessa fyrstu viku á skrifstofu félagsins.

Húsið er leigt viku í senn og ber að greiða vikuleiguna við pöntun á húsinu. Félagar eru hvattir til að nýta sér félagavefinn eftir 11. maí. Þar er hægt að panta, greiða og prenta út samninginn. Einnig er hægt að koma á skrifstofu félagsins og panta og greiða þar fyrir vikuna.

Þá viljum við minna félagsmenn á orlofsíbúðir félagsins í Kópavogi. Þær eru til útleigu með venjubundnum hætti allt árið og er eins með þær að hægt er að panta vikuleigu og greiða fyrir í gegn um félagavefinn. Lyklar af þeim eru afhentir á skrifstofunni.

Einnig minnum við félagsmenn á að útilegukortið og  veiðikortið sem eru til sölu á skrifstofu félagsins.

Þá minnum við einnig á orlofsstyrkina.

Allar nánari upplýsingar er að fá á skrifstofu félagsins að Skipagötu 14, og í síma 455-1050.

Stjórn SE.