Frá og með fimmtudeginum 2. maí nk. verður opnað fyrir pantanir á orlofshúsi félagsins nr. 9 á Illugastöðum í Fnjóskadal. Leiga hefst föstudaginn 31. maí. Þeir sem ekki hafa fengið leigt í sumarhúsinu sl. 3 ár sitja fyrir til kl. 12:00 fimmtudaginn 9. maí og er eingöngu hægt að panta leigu þessa fyrstu viku á skrifstofu félagsins.
Húsið er leigt viku í senn og ber að greiða vikuleiguna við pöntun á húsinu. Félagar eru hvattir til að nýta sér félagavefinn sem er á heimasíðu félagsins, www.sjoey.is eftir 9. maí. Þar er hægt að panta, greiða og prenta út samninginn sem gildir fyrir þá viku sem pöntuð er. Einnig er hægt að koma á skrifstofu félagsins og panta og greiða þar fyrir vikuna.
Þá viljum við minna félagsmenn á orlofsíbúðir félagsins í Kópavogi. Þær eru til útleigu með venjubundnum hætti allt árið og er eins með þær að hægt er að panta vikuleigu og greiða fyrir í gegn um félagavefinn. Lyklar af þeim eru síða afhentir á skrifstofu félagsins.
Einnig minnum við félagsmenn á að útilegukortið og veiðikortið sem eru til sölu á skrifstofu félagsins. Þá minnum við einnig á orlofsstyrkina.
Allar nánari upplýsingar er að fá á skrifstofu félagsins að Skipagötu 14, og í síma 455-1050.