Auglýsing um orlofshús, orlofsíbúðir, styrki og fl.

Frá og með mánudeginum 2. maí nk. verður opnað fyrir pantanir orlofshúsi félagsins nr. 9 á Illugastöðum í Fnjóskárdal. Húsið er leigt viku í senn og ber að greiða vikuleiguna við pöntun á húsinu. Félagar eru hvattir til að nýta sér félagavefinn sem er hér á heimasíðu félagsins. Þar er hægt að panta, greiða og prenta út samninginn sem gildir fyrir þá viku sem pöntuð er. Einnig er hægt að koma á skrifstofu félagsins og panta og greiða þar fyrir vikuna. Þá viljum við minna félagsmenn á orlofsíbúðir félagsins í Kópavogi. Þær eru til útleigu með venjubundnum hætti allt árið og er eins með þær að hægt er að panta vikuleigu og greiða fyrir í gegn um félagavefinn. Lyklar af þeim eru síða afhentir á skrifstofu félagsins.  Einnig minnum við félagsmenn á að útilegukortið er til sölu á skrifstofu félagsins á sanngjörnu verði. Þá minnum við einnig á orlofsstyrkina. Allar nánari upplýsingar er að fá á skrifstofu félagsins að Skipagötu 14, og í síma 462-5088.