Félagsmenn athugið! - Útborgun 21. desember 2012

Greiðsla dagpeninga og styrkja úr sjúkrasjóði og fræðslusjóði vegna desembermánaðar fer fram 21. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.
Skila þarf gögnum til félagsins í síðasta lagi 20. desember nk. til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2013.
Afgreiðsla stéttarfélaganna á 3ju hæð verður opin fimmtudag og föstudag á milli hátíða.