Hvetjum til rafrænna samskipta - COVID-19 - Corona virus - Koronawirus

Vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar, viljum við enn og aftur hvetja félagsmenn til að nýta sér síma, tölvupóst og vefsíðu félagsins fremur en að mæta á skrifstofurnar ef hægt er.

SjóEy vill vekja athygli félagsmanna á að fjölda erinda við félagið er hægt að sinna í gegnum síma og með tölvupósti.  Sími félagsins er 455 1050 en einnig má senda póst á sjoey@sjoey.is og bregst starfsfólk félagsins hratt við erindum. Með því að nota síma og tölvupóst þegar unnt er  - minnkum við líkur á vírusinn breiðist hraðar út en efni standa til.

SjóEy would like to advise our members to use telephone or email in communications with the union - instead of coming to our offices.  Our telphone is 460 3600 and our email sjoey@sjoey.is By communicating with phone and email instead of direct contact,  we might delay the spreading of the corona virus.

SjóEy chciałby doradzić naszym członkom, aby w komunikacji ze związkiem używali telefonu lub poczty elektronicznej – w miejsce stawiania się w biurach. Nasz telefon to 460 3600, a nasz e-mail sjoey@sjoey.is Komunikując się telefonicznie i pocztą e-mail zamiast bezpośredniego kontaktu, możemy opóźnić rozprzestrzenianie się wirusa korony.

Allir að spritta
Á skrifstofum félagsins eru allir snertifletir sótthreinsaðir reglulega og eftir þörfum. Þeir sem nauðsynlega þurfa að koma er bent á að við innganga eru sprittstandur og eiga allir að spritta á sér hendurnar áður en gengið er að afgreiðsluborðum. Við afgreiðsluborð þarf að hafa í huga að í gildi er tveggja metra fjarlægðarregla. 

Virðum áfram allar reglur sóttvarnalæknis þar til endanlega hefur verið slakað á þeim. Skv. sóttvarnalækni munu eftirfarandi aðgerðir skila tilætluðum árangri að koma í veg fyrir hópsýkingar og frekari útbreiðslu.

  • Handþvottur!
  • Handspritt!
  • Hreinsa áhöld og fleti sem maður veit ekki hverjir hafa snert!
  • Forðast fjölmenni!

Þeir sem finna fyrir einhverjum einkennum sem geta bent til þess að viðkomandi sé smitaður, hafa verið á ferðalagi á skilgreindum áhættusvæðum erlendis og þeir sem hafa umgengist fólk sem svo hefur greinst með COVID-19 eru vinsamlegast beðnir um að koma EKKI á skrifstofur félagsins.