Nýr félagavefur

Sjómannafélag Eyjafjarðar hefur tekið í notkun nýtt félaga- og orlofskerfi sem nefnist Total. Samhliða fær félagsfólk aðgang að nýjum félagavef þar sem það getur séð yfirlit yfir félagsgjöld og réttindi í sjóðum, aðgang að orlofshúsakerfi ofl.

Allar umsóknir um styrki, sjúkradagpeninga og bókanir orlofshúsa fara héðan í frá gegnum nýja félagavefinn. Innskráningarsíðan er https://mitt.sjoey.is þar sem félagsfólk skráir sig inn á “Mínar síður” með rafrænum skilríkjum.

Ýtarlegar leiðbeiningar um notkun félagavefsins má finna hér.

Við hvetjum félagsfólk til að fara inn á “Mínar síður” inni á https://mitt.sjoey.is og uppfæra upplýsingar eins og t.d. símanúmer, netfang og bankaupplýsingar. Einnig er möguleiki að skrá starfsheiti og starfsstöð t.d. ef viðkomandi starfar hjá fyrirtæki með margar starfsstöðvar.

Opnað fyrir orlofshúsabókanir:

Athugið að opnað verður fyrir orlofshúsabókanir fyrir tímabilið janúar - maí 2026 eins og hér segir:

  • Sumarhús Illugastöðum: Þriðjudaginn 16. des. kl. 12:00 
  • Íbúðir Hafnarbraut, Kópavogi: Miðvikudaginn 17. des. kl. 12:00

Um bókanir mun gilda fyrstur bókar fyrstur fær og hvetjum við félagsfólk til þess að kynna sér vel hvernig bóka á í gegnum nýja félagavefinn.