Opið hús

Undirituð stéttarfélög hafa tekið í notkun endurbætt húsnæði á 3ju hæð Alþýðuhússins á Akureyri og sameinað afgreiðslu og símsvörun félaganna.  Nýtt símanúmer hefur verið tekið í notkun 455 1050 og faxnúmer 455 1059. Skrifstofan er opin frá kl. 8.30 til kl 16.00 virka daga.

Húsnæðið verður til sýnis fyrir félagsmenn og gesti föstudaginn 10. febrúar n.k. frá kl. 16.00 til kl. 19.00

Heitt á könnunni, vonumst til að sjá sem flesta.

 

FMA. Félag málmiðnaðarmanna Akureyri

FVSA. Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

SE. Sjómannafélag Eyjafjarðar

VM. Félag vélstjóra og málmtæknimanna