Ályktanir 32. þings SSÍ um öryggis- og tryggingamál sjómanna.

Öryggismálin eru sjómönnum og fjölskyldum þeirra afar hugleikin og hafa alltaf verið. Opinber stefna t.d. Siglingaráðs og þá stjórnvalda er að stefnt skuli að því að mannskaði við veiðar á Íslandsmiðum verði engir á hverju ári. Mikið hefur áunnist í þessu efni en ekki má sofna á verðinum og þurfa þessi mál sífellt að vera í umræðunni.

 

Slysavarnaskóli sjómanna

Slysavarnaskóli sjómanna var settur á laggirnar 1985. Síðan þá hefur slysum og banaslysum til sjós fækkað að miklum mun. Hlúa verður vel að skólanum og búnaði hans. Hvetja til ákveðinnar öryggismenningar og að öll slys og næstum því slys séu skráð á réttan hátt. Þannig færum við komandi kynslóðum sjómanna ómetanlegar upplýsingar um hvernig má forðast slysin.

32. þing SSÍ þakkar slysavarnaskólanum fyrir árvekni og gott starf í þágu sjómannnstéttarinnar. Einnig fagnar þingið tilkomu öryggishandbóka í Íslensk fiskiskip.

 

Flugsveit og varðskip LHG

Það vita allir sem vilja vita hve þyrlusveit LHG skiptir sjómenn miklu máli. Það er lágmarks krafa sjómanna að alltaf séu til staðar tvær flughæfar þyrlur og tvær áhafnir á vakt með læknum. Einnig krefjast sjómenn þess að flugvél LHG sé til staðar allt árið. Hún gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki við leit og björgun á úthafsmiðum okkar.

32. þing SSÍ samgleðst með Íslendingum vegna komu nýs og öflugs varðskips, Freyju, til Íslands og að staðsetning þess og heimahöfn verði á Siglufirði.

 

Björgunaræfingar

Æfingar um borð eru skylda og á að vera hluti af öryggismenningu á öllum fiskiskipum. Með æfingum slípast menn saman og vinna fumlausar á hættustund. Æfingin skapar meistarann. Nýliðafræðsla á einnig að vera fagleg og hluti af öryggismenningunni.

32. þing SSÍ hvetur sjómenn til árvekni og að stunda skipulegar æfingar um borð.

 

Hvíldartíminn

Illa hvíldur og vansvefta sjómaður er hættulegur bæði sjálfum sér og öðrum.

Á síðustu árum hefur borið á að fækkað sé í áhöfnum skipa. Sumpart á þetta sér stað vegna tæknibreytinga, en einnig hefur borið á að við fækkun í áhöfn aukist verulega álag á þá skipverja sem eftir eru um borð. Samtök sjómanna hafa lengi kallað eftir því að settar verði í lög reglur um lágmarks mönnun fyrir fiskiskip við veiðar. Reglurnar taki mið af stærð og gerð skipa og miðist við þær veiðar sem skipin stunda.

Í dag eru aðeins í lögum reglur um lágmarks mönnun réttindamanna þegar skip er á siglingu. Sárlega vantar reglur um heildar mönnun skipa við veiðar. Ef skip er vanmannað kemur það niður á hvíldartíma áhafnarinnar. Hvíldartíminn flokkast sannanlega undir öryggismál sjómanna.

32. þing SSÍ krefst þess að stjórnvöld setji fiskiskipum mönnunarreglur í samræmi við öryggi og vinnuna um borð. Einnig krefst þingið þess að útgerðarmenn hætti þeirri áráttu að fækka um borð, með það eina að markmiði að lækka launakostnað en eru um leið að rýra öryggi þeirra sem eftir verða.

 Lögskráning sjómanna

Nýtt kerfi við lögskráningu sjómanna hefur verið í smíðum og nú hillir undir að nýtt kerfi verði tekið í notkun. Kerfið sem nú er í notkun er gamalt og úr sér gengið.

32. Þing SSÍ minnir á öryggishlutverk kerfisins. Það heldur utan um allar lögskráningar sjómanna á Íslandi og réttindi þeirra. Vegna kerfisins vitum við hverjir eru á hvaða skipi og hvaða stöðu þeir gegna.

 

Ný björgunarskip

Það er löngu tímabært að endurnýja björgunarskipastól Landsbjargar. Sú vinna er nú hafin og er það vel. Gömlu skipin hafa reynst okkur mjög vel en eru nú úr sér gengin.

32. þing SSÍ fagnar komu nýrra björgunarskipa til Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

 

Mönnunarmál

Neyðaráætlun um borð í fiskiskipum þarf að vera í samræmi við fjölda í áhöfn á hverju skipi fyrir sig. Fækkun háseta um borð í fiskiskipum hefur það í för með sér að stýrimenn, vélstjórar og kokkar ganga í störf hásetanna. Þetta er ekki til að auka öryggi um borð í fiskiskipum landsins.

32. þing SSÍ telur öryggi sjómanna stefnt í hættu með því að fækka í áhöfn fiskiskipa.

 

Endurmenntun sjómanna

Það á að vera hægt að taka endurmenntun sjómanna um borð í því skipi sem menn eru á.  Námskeiðið yrði lærdómsríkara ef það yrði haldið þannig.

Þarna væru sjómennirnir að læra rétt viðbrögð við ýmsar aðstæður á sínum vinnustað sem gerir endurmenntunina mun skilvirkari.

32. þing SSÍ telur að endurmenntun sjómanna eigi að fara fram á þeirra vinnustað.