Rafræn atkvæðagreiðsla um ótímabundið verkfall

Allir atkvæðisbærir félagsmenn í Sjómannafélagi Eyjafjarðar fá sent bréf um framvindu samningaviðræðnanna við SFS auk leyniorðs sem nota má við atkvæðagreiðsluna.

Félagsmaðurinn fer inn á heimasíðu Sjómannafélags Eyjafjarðar og smellir þar á mynd sem á stendur:

Atkvæðagreiðsla um ótímabundið verkfall

Þá opnast þessi gluggi sem eftir innskráningu opnar leið að atkvæðaseðli

Hægt er að auðkenna sig/skrá sig inn til að greiða atkvæði með því að slá inn kennitöluna sína og síðan leyniorðið sem viðkomandi fékk sent í kynningarbréfinu. Einnig er hægt að auðkenna sig beint með innskráningu á island.is þ.e. með Íslykli  eða  rafrænum skilríkjum á farsíma. Þeir sem týna bréfinu með lykilorðinu og þeir sem kært hafa sig inn á kjörskrá geta einungis greitt atkvæði með innskráningu á island.is.

Opnast nú   Atkvæðaseðill   Þar er merkt í  Já    eða   Nei   eða   Skila auðu og atkvæðinu skilað með því að smella á „Skrá atkvæði“.  

Félagsmönnum sem telja sig eiga rétt á að kjósa en fá ekki bréf eða tölvupóst um kosninguna, er bent á að hafa samband við skrifstofu Sjómannafélags Eyjafjarðar í síma 455-1050 eða senda tölvupóst á konrad@sjoey.is  eða eydis@fvsa.is  með upplýsingum um nafn og kennitölu.

Þeir sem kæra sig inn á kjörskrá geta einungis kosið með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.