Sameining stéttarfélaga sjómanna

Viðræður um sameiningu  Sjómannafélags Eyjafjarðar, Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur, Sjómannafélag Íslands, Sjómannafélag Hafnarfjarðar, Sjómannafélagið Jötunn og mögulega enn fleiri.

Unnið hefur verið í þessu máli síðustu mánuði og hafa viðræður þessara félaga skilað þeim árangri að farið er að sjást til lands. Við munum því halda ótrauðir áfram og vonandi getum við lagt af stað í kynningu á því hvernig væntanlegt félag muni líta út eftir ekki svo langan tíma. Það verða jú auðvitað félagsmenn þessara félaga sem eiga síðasta orðið í því hvort af þessu verður eða ekki.

Markmið sameiningar er að búa til stórt og öflugt félag til að standa að baki sjómönnum þessa lands. Með þessu móti getum við sameinað krafta okkar og þannig skapað grundvöll til að setja gríðarlega innspýtingu allt okkar starf, ekki síst þær kjarasamningsviðræður sem framundan eru við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi.