Sjómannafélag Eyjafjarðar styrkir Velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðis

Stéttarfélögin á þriðju hæð í Alþýðuhúsinu styrkja Velferðarsjóð Eyjafjarðar. Frá vinstri: Trausti J…
Stéttarfélögin á þriðju hæð í Alþýðuhúsinu styrkja Velferðarsjóð Eyjafjarðar. Frá vinstri: Trausti Jörundarson - formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, Sigmundur Kristberg Magnússon - verkefnastjóri hjá Byggiðn, Baldvin Valdimarsson - varamaður í stjórn Velferðarsjóðs Eyjafjarðar, Anna Guðný Guðmundsdóttir - rekstrarstjóri Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, Helgi Sveinbjörn Jóhannsson - starfsmaður f.h. Félags Málmiðnaðarmanna og Eiður Stefánsson - formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni.

Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar samþykkti á dögunum styrk að upphæð 600.000 kr. til Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis. Sjóðurinn er samstarfsverkefni Mæðrastyrksnefndar Akureyrar, Hjálpræðishersins á Akureyri, Rauða Krossins við Eyjafjörð og Hjálparstarfs Kirkjunnar, en í sameiningu standa samtökin að jólaaðstoð á svæðinu.

Jólaaðstoðin var fyrst veitt árið 2013 og hefur samstarfið gefist vel. Því var ákveðið að útvíkka starfsemina og stofna Velferðarsjóð á Eyjafjarðarsvæðinu sem sér um velferðaraðstoð á ársgrundvelli. Markmið sjóðsins er tvíþætt; að einfalda fólki að leita sér aðstoðar allan ársins hring og halda utan um upplýsingar um þörfina í samfélaginu. Starfssvæði sjóðsins er Eyjafjörður, frá Siglufirði til Grenivíkur. 

Sækja um aðstoð

Þau sem þurfa á aðstoð að halda yfir hátíðarnar geta sótt um rafrænt á www.velferdey.is, umsóknarfrestur er til og með 4. desember.

Styrkja sjóðinn

Til að styrkja jólaaðstoð Velferðasjóðs Eyjafjarðar er hægt að leggja inn á söfnunareikning sjóðsins: Kt. 651121-0780 - Rn. 0302-26-003533

Einnig er hægt styrkja sjóðinn með kaupum á velferðarstjörnunni sem fæst m.a. í Lindex á Glerártorgi.