Slit á sameiningaviðræðum

Stjórn félagsins kom saman til fundar í gær og var eitt mál á dagskrá fundarins, þ.e. staðan í viðræðum þeirra fimm sjómannafélaga sem verið hafa í gangi um nokkurt skeið. Viðbrögð félagsmanna og áhyggjur okkar stjórnarmanna í Sjómannafélagi Eyjafjarðar um þær alvarlegu ásakanir sem settar hafa verið fram á hendur stjórnendum Sjómannafélags Íslands hefur sett okkur í þá stöðu að óhjákvæmilegt er annað en að bregðast við. Á stjórnarfundinum var samþykkt eftirfarandi yfirlýsing sem undirrituð er af formanni SE og formanni Jötuns um að ekki verði lengra farið í málinu og dragi því þessi félög sig út úr þessum viðræðum.  

Hér neðar er yfirlýsingin undirrituð í heild.

 

Yfirlýsing frá Sjómannafélagi Eyjafjarðar og Sjómannafélaginu Jötni .

Í fréttum undanfarna daga hafa komið fram mjög alvarlegar ásakanir á hendur stjórnendum Sjómannafélags Íslands um óheiðarlega framkomu og falsanirá fundargerðarbók sjómannafélagsins. Ásakanir þessar hafa komið fram í tengslum við fyrirhugað mótframboð til stjórnar félagsins í tengslum við aðalfund þess sem fram fer á milli jóla og nýárs. Þessar ásakanir telja stjórnendur ofangreindra félaga svo alvarlegar að við því verði að bregðast.

Þar sem ofangreind félög hafa verið í sameiningarviðræðum við Sjómannafélag Íslands, Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Sjómannafélag Hafnarfjarðar er það mat stjórnenda þessara félaga að ekki verði lengra farið og draga sig því út úr þessum sameiningarviðræðum félaganna.

Fyrir hönd félaganna: 

Konráð Alfreðsson formaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar 

Þorsteinn Guðmundsson formaður
Sjómannafélagsisn Jötuns