Stjórnarkjör

Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar hefur ákveðið að kjör, 5 manna stjórnar og 3ja til vara, 7 manna trúnaðarráð og 7 til vara, 2 menn í kjörstjórn og 1 til vara, 2 menn í fulltrúaráð Gildis- lífeyrissjóðs fyrir næstu tvö starfsár, fari fram að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu í samræmi við lög félagsins og reglugerð ASÍ.

Framboðslistum skal skila til skrifstofu félagsins Skipagötu 14,  Akureyri, eigi síðar en kl. 12.00 föstudaginn 12. febrúar 2021.

Hverjum lista skulu fylgja meðmæli 20 fullgildra félagsmanna.

 

Akureyri 12. janúar 2021

Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar.