Stjórnarkjör 2023-2025

Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar hefur ákveðið að kjör, 5 manna stjórnar og 3ja til vara, 7 manna trúnaðarráð og 7 til vara, 2 menn í kjörstjórn og 1 til vara, 2 menn í fulltrúaráð Gildis- lífeyrissjóðs fyrir næstu tvö starfsár, fari fram að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu í samræmi við lög félagsins og reglugerð ASÍ.

Framboðslistum skal skila til skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri, eigi síðar en kl. 12.00 þriðjudaginn 14. febrúar 2023.

Hverjum lista skulu fylgja meðmæli 20 fullgildra félagsmanna.

 Akureyri 16. janúar 2023

Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar.