Styrkur til hjálparsamtaka í Eyjafirði

Forsvarsmenn stéttarfélaganna og viðtakendur
Forsvarsmenn stéttarfélaganna og viðtakendur

Sjö stéttarfélög í Eyjafirði afhentu fyrr í dag, fimmtudaginn 28. nóvember, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálpræðishernum og Rauða krossinum styrk að upphæð kr. 1.920.000.

Styrkurinn verður notaður í samstarfsverkefni Mæðrastyrksnefndar Akureyrar, Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins og Rauða krossins. Samstarfið var sett á laggirnar til að einfalda málið, en nú þarf einungis að sækja um aðstoð á einum stað Rétt er að vekja athygli á því að þessir aðilar aðstoða fólk um allan Eyjafjörð, frá Siglufirði að Grenivík.

Þetta er í annað sinn sem þessi samtök taka höndum saman fyrir jólin og veita þeim aðstoð sem þurfa. Í fyrra var ákveðið að vinna saman að jólaaðstoðinni og gafst það samstarf það vel að ákveðið var að endurtaka leikinn og í lok október var undirritaður samstarfssamningur til næstu þriggja ára. Í fyrra var úthlutað 303 styrkjum í formi greiðslukorta sem hægt var að versla fyrir í ákveðnum verslunum.

Jólaaðstoðin hófst 18. nóvember sl. með viðtölum, en allir sem sækja um aðstoð þurfa að panta tíma í viðtal. Viðkomandi þarf að hringja í síma 537 9050 milli kl. 11.00 og 13.00 á mánudegi, þriðjudegi eða miðvikudegi fyrir 5. desember nk.

Þeir sem fá úthlutun sækja kortin sín miðvikudaginn 11. og fimmtudaginn 12. desember nk. milli kl. 13 og 16. Auk þess verður fatamarkaður og jólagjafir fyrir umsækjendur og fjölskyldur þeirra opinn föstudaginn 14. desember hjá Rauða krossinum á Akureyri, Viðjulundi 2 og Hertex Hjálpræðishersins, Hrísalundi 1b.

Félögin sjö sem færðu nefndinni styrk eru Eining-Iðja, Byggiðn – Félag byggingamanna, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, Sjómannafélag Eyjafjarðar, Sjómannafélag Ólafsfjarðar og Berg félag stjórnenda.

Ef einhverjir fleiri vilja leggja átakinu lið þá er hægt að leggja inn á reikning verkefnisins, (0302-13-175063, kt. 460577-0209) og munið, margt smátt gerir eitt stórt.