Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski og ýsu um 9-10%

Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 9%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var hækkað um 10% og verð á karfa um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. febrúar 2010.