Varðskipið Þór til sýnis á Akureyri í dag og á morgun.

Þór á siglingu
Þór á siglingu

Af vef Vikudags.

Varðskipið Þór kom til Akureyrar í morgun og er áætlað að skipið verði opið til sýnis við Oddeyrarbryggju í dag frá kl. 13:00-18:00 og á morgun þriðjudaginn 29. nóvember frá kl. 10:00-12:00 og 13:00-17:00.

Varðskipið Þór kom til Akureyrar í morgun og er áætlað að skipið verði opið til sýnis við Oddeyrarbryggju í dag frá kl. 13:00-18:00 og á morgun þriðjudaginn 29. nóvember frá kl. 10:00-12:00 og 13:00-17:00. Varðskipið var afhent í Chile 23. september síðastliðinn og hófst siglingin til Íslands 28. september. Mánuði síðar eða 26. október kom varðskipið til Vestmannaeyja sem var fyrsta höfn skipsins hér á landi.

Auk hefðbundinna skyldustarfa mun varðskipið koma víða við um landið á næstu mánuðum þar sem það verður til sýnis fyrir alla áhugasama en nú hefur skipið verið til sýnist í Vestmannaeyjum, Reykjavík, á Neskaupstað, Reyðarfirði og Ísafirði og hafa um 14.500 manns nú skoðað varðskipið Þór. Koma varðskipsins er bylting í vöktun, öryggismálum, leit og björgun innan íslenska hafsvæðisins. Á síðustu árum hefur umferð frá Noregi og Rússlandi aukist stórlega og er vissulega þörf á öflugu varðskipi til að vera til taks enda er því spáð að með opnun norðaustursiglingarleiðarinnar eigi umferð um svæðið eftir að aukast umtalsvert. Þór gegnir þar mjög mikilvægu hlutverki í samstarfi þjóða á Norður Atlantshafi. Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar.