Sjö stéttarlýðsfélög í Eyjafirði afhentu í dag, mánudaginn 3. desember, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarfi
kirkjunnar, Hjálpræðishernum og Rauða krossinum styrk að upphæð kr. 2.120.000.
Styrkurinn verður notaður í samstarfsverkefni Mæðrastyrksnefndar Akureyrar, Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins og Rauða krossins.
Þetta er í fyrsta sinn sem þessi samtök taka höndum saman fyrir jólin og veita þeim aðstoð sem þurfa með þátttöku
fyrirtækja og bæjarbúa á Akureyri og nágrenni. Samstarfið á að einfalda málið, nú þarf einungis að sækja um
aðstoð á einum stað Rétt er að vekja athygli á því að þessir aðilar aðstoða fólk um allan Eyjafjörð, frá
Siglufirði að Grenivík. Það sem þarf að gera er að hringja í síma 867 5258 milli kl. 10:00 og 12:00 á mánudegi, þriðjudegi
eða miðvikudegi fyrir 11. desember nk., en þann dag verður byrjað að úthluta. Varðandi umsóknir má einnig hafa samband við
félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar og prestana út með firði. Félögin sjö sem færðu nefndinni styrk eru Eining-Iðja,
Byggiðn – Félag byggingamanna, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrennis,
Sjómannafélag Eyjafjarðar, Sjómannafélag Ólafsfjarðar og Berg félag stjórnenda. Ef einhverjir fleiri vilja leggja átakinu lið
þá er hægt að leggja pening inn á reikning verkefnisins, (0302-13-175063, kt. 460577-0209) Munið, margt smátt gerir eitt stórt. Hér fyrir
neðan er grein sem Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju, ritaði um samstarf hjálparsamtakanna: Samtakamáttur á
aðventu Nýtt framtak er orðið til á gömlum grunni. Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn og Rauði
krossinn sameinast nú um stuðning við þau sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda fyrir jólin. Vonir standa til að fólk á
svæðinu taki höndum saman til styrktar þessu verkefni, því sameinuð getum við lyft grettistaki. Það er ekki auðvelt að standa í
þeim sporum að þurfa að leita eftir aðstoð hjá góðgerðarfélögum eða hjálparsamtökum. Mörg úr okkar
hópi íbúa hér í Eyjafirði stóðu í þeim sporum fyrir síðustu jól og þau verða ekki færri nú.
Því miður. Gera má ráð fyrir rúmlega 500 slíkum umsóknum fyrir þessi jól. Flest þeirra sem ákveða að fylla
út slíka umsókn, hvort heldur þau búa ein eða eru með fjölskyldu, eiga það sameiginlegt að vera búin að marg spyrja
þeirrar spurningar hvort ekki sé til önnur leið. Síðasta úrræðið er að leita eftir aðstoð hjá
góðgerðasamtökum. Með þessari breytingu hverfa matarpokaúthlutanir. Eftir að umsókn hefur verið metin fær viðkomandi einstaklingur
eða fjölskylda úthlutað inneignakorti / gjafabréfi sem léttir undir jólainnkaupin. Ný samstaða fæðist þar með, því
mörkin milli þess sem gefur og þess sem þiggur verða óljósari. Tilfinning þess sem sækir um styrk verður síður sú að
hann / hún sé í stöðu hins hjálparþurfi. Líklegra er að tilfinningin verði sú að við sem samfélag séum að
taka höndum saman svo að öll getum átt jól með sæmilegri reisn. Tvennt þarf þó að koma til svo að af því geti
orðið. Annars vegar þurfa aflögufærir einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir í samfélaginu að leggja átakinu lið
með því að leggja pening inn á reikning verkefnisins, (0302-13-175063, kt. 460577-0209) eða með því að koma gjafabréfum til
Mæðrastyrksnefndar. Hins vegar þurfum við öll, ég og þú, að taka þessu framtaki vel og líta á það sem lið í
því að sameinuð tökum við skref í átt að því manneskjuvæna samfélagi sem við viljum sjá hér norðan
heiða. Gleðilega aðventu Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju