Vegleg gjöf til Mæðrastyrksnefndar Akureyrar

Talið frá vinstri. Konráð Alfreðsson, Jóna Berta, Björn Snæbjörnsson, Finnbogi Jónsson, Heimir Krist…
Talið frá vinstri. Konráð Alfreðsson, Jóna Berta, Björn Snæbjörnsson, Finnbogi Jónsson, Heimir Kristinsson, Einar Hjartarson og Eggert Jónsson.

Sex verkalýðsfélög í Eyjafirði afhentu í dag, föstudaginn 14. desember, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar styrk að upphæð kr. 1.100.000. Jóna Berta Jónsdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Mæðrastyrksnefndarinnar.

 

Í ávarpi við athöfnina lýsti Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, yfir þakklæti fyrir hönd félaganna sex fyrir það mikla og góða starf sem unnið er í nefndinni. “Það er mikil gæfa að eiga að þær konur sem í Mæðrastyrksnefndinni starfa og eru tilbúnar að leggja mikla vinnu af mörkum til þess að rétta hjálparhönd þeim sem á þurfa að halda til þess að geta búið sér og sínum gleðilega jólahátíð. Það er sárt til þess að hugsa að leggja þurfi til háar upphæðir til að mæta þörfum þessara einstaklinga.”

Fyrsti úthlutunardagur á morgun
Á morgun, laugardag, er fyrsti dagur úthlutunar hjá Mæðrastyrksnefnd sem nú er til húsa í Íþróttahöllinni, gengið inn að vestan. Jóna Berta sagði að það væri búið að vera mikið að gera hjá þeim því þörfin væri mikil, of mikil eins og oft áður. “Það eru mjög margir sem vilja leggja okkur lið nú fyrir jólin, fleiri en oft áður og ég vil þakka öllum fyrir þann góða stuðning sem við höfum fengið. Við gætum ekki gert þetta ef þið og aðrir á svæðinu hefðuð ekki sýnt slíkan samhug í verki.”

Rétt er að vekja athygli á því að Mæðrastyrksnefnd Akureyrar aðstoðar fólk um allan Eyjafjörð og starfar allan ársins hring þótt mestu annirnar séu nú eins og jafnan áður í kringum jólahátíðina. “Úthlutað verður dagana 15. til 20. desember frá kl. 10 -18, en þó svo við auglýsum ákveðinn tími til umsókna vegna aðstoðar fyrir jólin munum við ekki neita fólki sem á aðstoð þarf að halda og hefur samband við okkur eftir þann tíma. Ábendingar eru einnig vel þegnar ef fólk veit um einhvern sem þarf aðstoð en af einhverjum ástæðum getur ekki óskað eftir henni,” segir Jóna Berta.

Félögin sex sem færðu nefndinni styrk í dag eru Eining-Iðja, Félag byggingamanna Eyjafirði, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrennis, Sjómannafélag Eyjafjarðar og Verkstjórafélag Akureyrar og nágrennis.