Við opnum aftur inn til okkar á mánudaginn 4. maí

Við opnum aftur inn til okkar á mánudaginn 4. maí, við höldum samt áfram að þvo, spritta og virða tveggja metra regluna. Fyrst um sinn verður starfsfólki áfram skipt upp í tvo hópa. Á meðan annar hópurinn sinnir sínum störfum á skrifstofunni mun hinn hópurinn vinna heima. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að loka þurfi skrifstofunni alveg ef upp kæmi þar smit eða ef einhver starfsmaður þyrfti að fara í sóttkví. 

Útilegukortið og Veiðikortin eru komin og verða til sölu í afgreiðslunni fyrir félagsmenn, nánar um kortin hér.

Einnig eru til sölu gistimiðar á Fosshótelin en okkur langar að benda á að í sumar gildir vetrarverð á hótelin og þarf því aðeins 1 stk gistimiða á nótt en ekki tvo eins og verið hefur á sumrin, nánar má sjá upplýsingar um gistimiðana hér.

Minnum svo á að frá og með mánudeginum 4. maí nk. verður opnað fyrir pantanir á orlofshúsi félagsins nr. 9 á Illugastöðum í Fnjóskadal. Leiga hefst föstudaginn 5. júní.
Þeir sem ekki hafa fengið leigt í sumarhúsinu sl. 3 ár sitja fyrir til kl. 12 mánudaginn 11. maí og er eingöngu hægt að panta leigu þessa fyrstu viku á skrifstofu félagsins.

Við þökkum fyrir þolinmæðina undanfarnar vikur og sendum ykkur hrós hversu vel hefur tekist að aðlagast breyttum samskiptum við félagið á þessum veiru tímum.