Viðmiðunarverð í gildi frá 3. desember 2025

Samkvæmt ákvörðun hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS) frá 3. desember 2025, breytist viðmiðunarverð samkvæmt kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 8,0%
Óslægður þorskur hækkar um 5,0%
Slægð og óslægð ýsa hækkar um 6,3%
Ufsi lækkar um 1,5%
Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. desember 2025.